Alfa – 6 ára útikisa

10 okt, 2024

Alfa er 6 ára bröndótt og hvít læða sem óskar nú eftir traustu framtíðarheimili þar sem hún kæmist aðeins út að leika sér eftir að hafa aðlagast á heimilið. Hún er ekki vön börnum né öðrum dýrum og óskar eftir rólegum einstaklingi sem er mikið heimavið. Hún er dásamlega kelin og góð við þá sem hún treystir, en það tekur hana smá tíma að treysta.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Ölfu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.