16. júní var komið með 2 svarta 5 vikna kettlinga sem fundust í ruslagámi hjá Sorpu í Reykjavík.
Þeir eru mjög umkomulausir litlu skinnin.
Hvernig getur mannskepnan sett lítil varnalaus dýr í ruslagám eins um rusl væri að ræða .
Ég vil þakka starfsfólkinu í Sorpu fyrir alla þeirra elsku til dýra sem þeir hafa bjargað.
Atburður sem þessi vekur hjá mér sorg í brjósti og get ég aðeins vonað að breyting verði á , okkur ber skylda til að sýna okkar minnstu smælingum elsku og virða líf þeirra.
Velkomin í skjól elsku kisubörnin mín.
Kveðja Sigríður Heiðberg formaður.