Yrjótt 5 mánaða læða fannst 8. Apríl við Smiðjuveg í Kópavogi.
Pilturinn sem fann kisuna hafði samband við athvarfið en hann fann kisuna í Iðnaðarhverfi í morgunn með mat og matarskálar, og pissukassa.
Lögreglan í Kópavogi var svo vinsamleg að sækja kisuna og koma með hana í Kattholt. Alveg gengur yfir mig framkoma fólks gagnvart dýrunum okkar.
ÆÆ hún er samt komin í skjól litla skinnið með mat og elsku starfsmanna. Þakk fyrir það.
Það er gott að vera til staðar fyrir dýrin okkar í neyð þeirra. Mér finnst alltaf dýrin horfa á mig og biðja um miskunn sér til handa.
Ég þakka fyrir á hverjum degi að geta verið til staðar fyrir blessuð dýrin.
Kveðja Sigga.