Velkomin á heimasíðu Kattholts

Opnunartími í Kattholti

Opið er alla virka daga kl. 9-15 og á laugardögum kl. 9-11. ATH. Lokað á sunnudögum. Símatímar eru alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Móttaka á hótelgestum er milli kl. 9-12 á virkum dögum og frá kl. 9-11 á laugardögum. ATH. Nýtt dagvistunargjald tekur gildi frá og með 1. mars 2023 og verður gjald fyrir einn kött 1.900 pr/dag og fyrir tvo ketti 2.900 pr/dag.

Kisur í heimilisleit eru sýndar eftir hádegi á virkum dögum á fyrirfram bókuðum tíma. Bókun fer fram símleiðis milli kl. 9-12 á virkum dögum eða í tölvupósti á netfanginu [email protected]  Vinsamlegast athugið að kisurnar eru aðeins sýndar þeim sem ætla að taka að sér kisu á heimili. Gjald er 24.500-. fyrir kött frá Kattholti, óháð kyni og aldri.

Týnd/fundin kisa: Ef kisa finnst og talið að hún sé týnd má koma henni í Kattholt á auglýstum opnunartíma. Utan opnunartíma má hafa samband við Dýraþjónustu Reykjavíkur (DÝR) í síma 822-7820 þar sem starfsfólk getur aðstoðað.

 

Neyðaraðstoð

Neyðaraðstoð: Ef þú finnur sært eða slasað dýr, vinsamlegast hafðu strax samband við næstu dýralæknastofu (í neyðarnúmer þeirra utan opnunartíma) og lögreglu í síma 112. Ef dýrið er ekki á lífi skal hafa samband við áhaldahús viðkomandi bæjarfélags eða lögregluembætti á þeim stað sem dýrið finnst.

Í neyðartilfellum má finna símanúmer vakthafandi dýralækna á höfuðborgarsvæðinu á heimasíðu Matvælastofnunar.

Fréttir

Hótel yfir páskana.

14.03.2023|0 Comments

Nú fer hver að verða síðastur að tryggja sér hótelpláss á Hótel Kattholti yfir páskana. Sendið tölvupóst á [email protected] Eins verður hægt að skrá á biðlista.

Þakkarkveðjur

21.02.2023|0 Comments

Móa litla, sem fannst á Kjalarnesi, þakkar innilega allan stuðning sem henni hefur verið sýndur síðastliðna daga. Nú er hún búin í aðgerð þar sem kjálki hennar var víraður saman til þess að lagfæra kjálkabrot [...]

Einn af elstu köttum Íslands!

13.02.2023|0 Comments

Beikon er talinn vera fæddur árið 2000, sem gerir hann með þeim elstu á Íslandi! Beikon fór til eiganda síns úr Kattholti árið 2003 og hefur búið þar allar götur síðan. Hann hefur lent í [...]

Hátíðarkveðjur

21.12.2022|0 Comments

Kattholt óskar öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Við þökkum stuðninginn á liðnu ári, það er ómetanlegt að eiga góða að. Gleðilega hátíð öll, nær og fjær.

Jólabasar í Kattholti

24.11.2022|0 Comments

Jólabasar Kattavinafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 3. desember n.k. kl. 11-16 í Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík. Á boðstólum verða fallegir munir er tengjast jólunum s.s. merkispjöld, jólapappír, jólaskraut, handverk ásamt hefðbundnu basardóti. Á basarnum verður [...]

Basardót og bakkelsi óskast

12.11.2022|0 Comments

Okkur er ánægja að tilkynna að jólabasar verður haldinn í Kattholti 3. desember. Gjafavara og kisutengdur varningur óskast fyrir basarinn og þeir sem vilja gefa geta komið með það í Kattholt á opnunartíma 9-15 á [...]

Kettir í minkagildrum

30.10.2022|0 Comments

Við fordæmum notkun á minkagildrum sem dæmi er um að kettir hafi ratað í, slasast og jafnvel týnt lífi. Hvetjum fólk til að vera vakandi fyrir hættum í umhverfinu sem geta verið skaðlegar börnum, köttum [...]

Hættur í myrkrinu

29.10.2022|0 Comments

Tilkynningar um dána ákeyrða ketti eru því miður allt of tíðar þessa dagana. Á þessum árstíma tekur að skyggja fyrr á kvöldin og af þeim sökum er erfiðara að sjá kettina í myrkrinu. Kettir eiga [...]

Fullt á hótelinu í vetrarfríinu!

11.10.2022|0 Comments

Fullbókað er á hótel Kattholti í vetrarfríinu, eða frá 14. október til 26. október. Ekki er hægt að skrá á biðlista fyrir þetta tímabil að svo stöddu.

Fullt á hótel Kattholti um jól og áramót 2022!

06.09.2022|0 Comments

Nú er allt orðið fullbókað á hótel Kattholti yfir jólin og áramótin. Við getum sett á biðlista. Hafið samband í tölvupósti á [email protected] eða símleiðis á virkum dögum milli 9-12 í síma 567-2909.

Reykjavíkurmaraþon 2022

11.08.2022|0 Comments

Kæru kattavinir! Það er ekki of seint að skrá sig til að hlaupa/skokka/ganga í Reykjavíkurmaraþoni og safna áheitum til styrktar Kattholti. Einnig hvetjum við alla til að heita á þá flotta hlaupara sem nú þegar [...]

Bókanir yfir jól og áramót

04.08.2022|0 Comments

Nú fer hver að verða síðastur að bóka pláss fyrir kisuna sína yfir jólin og áramótin á hótel Kattholti. Hægt er að bóka með því að senda tölvupóst á [email protected] eða hringja í síma 567-2909 [...]

Kattholt óskar eftir fósturheimilum fyrir kettlingafullar læður

06.07.2022|0 Comments

Kattholt óskar eftir fósturheimilum fyrir kettlingafullar læður á meðan þær koma kettlingum sínum á legg. Fósturtímabilið getur verið 3-4 mánuði. Ef þú telur þig vera réttan aðila, ekki hika við að hafa samband í tölvupósti [...]

Aðalfundur KÍS

14.05.2022|0 Comments

Aðalfundur Kattavinafélags Íslands verður haldinn í húsi félagsins að Stangarhyl 2, Reykjavík, þriðjudaginn 24. maí 2022 kl. 20:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál, löglega fram borin. Stjórnin

*** UPPFÆRT! Fullt frá og með 20. maí til 5. ágúst!!

20.04.2022|0 Comments

Minnum á að vera tímanleg fyrir bókanir, sérstaklega á álagstímum, eins og fyrir sumarið og jólin. Það er strax kominn biðlisti fyrir júlí! Hægt er að bóka með því að senda tölvupóst á [email protected] eða [...]

Allar fréttir >>