Viktoría 3 ára – Útikisa

21 júl, 2025

Viktoría er 3 ára útikisa sem óskar eftir framtíðarheimili. Hún er yndisleg, falleg og barngóð kisa.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Viktoríu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.