Ótrúlegur fjöldi katta eru í Kattholti um þessar mundir.
Þeir eru á öllum aldri , fallegir og blíðir, yfirgefnir af eigendum sínum.
Hvað er að okkur Íslendingum að fara svona með dýrin okkar.
Það er meira en tárum tekur að horfa upp á blessuð dýrin í vanmætti sínum.
Ég er orðin bálreið yfir meðferðinni á þeim.
Kisurnar okkar eiga ekki skilið þessa meðferð.
Við þurfum að ná til dýraníðinga sem henda dýrunum sínum út eins og hverju öðru rusli.
Kær kveðja .
Sigríður Heiðberg formaður.