Gulbröndóttur og hvítur loðinn högni fannst 4. apríl inni í bílskúr við Selvogsgötu í Hafnarfirði.
Hann var búinn að vera lokaður þar inni í tvær vikur litla skinnið.
Kom í Kattholt 5. apríl sl.
Hann var voðalega svangur og þreyttur.
Ég skýrði hann Flóka.
Velkomin í Kattholt vinur.
Kveðja til dýravina.
Sigríður Heiðberg.