Bröndóttur, ljúfur högni kom í Kattholt 27. febrúar. Hann var myndaður og skráður eins og allar kisur sem í Kattholt koma. Strax daginn eftir var haft samband við athvarfið og okkur tilkynnt að þetta væri Oliver, hann væri 7 ára gamall og væri búinn að vera týndur í 4 mánuði.
Myndin sýnir Oliver í fangi fjölskyldu sinnar eftir 4 mánaða aðskilnað.