Tópías og fjölskylda senda Kattholti kveðju og þakklæti.

24 júl, 2008

Ágæta starfsfólk í Kattholti


Tóbías er fundinn.  Ég auglýsti eftir honum á mánudaginn var og seint í gærkvöldi fékk ég upphringingu frá stúlku sem hafði fundið hann og tekið hann með sér heim. 


 


Takk fyrir það Steinunn.  Hún leitaði strax á Kattholtsíðunni og sá þar símanúmerið í ,,eftirlýstar kisur“.  Það er því alveg ómetanlegt að hafa aðgang að þessari síðu.


 


Kisi malar enn og ég er ekki frá því að ég geri það líka.


Legg inn smáaur í styrktarsjóðinn sem þakklætisvott.


 


Takk fyrir aðstoðina


Kristín Þ. Magnúsdóttir


og Tóbías