Tobby 8 ára innikisa

29 júl, 2024

Tobby er gulbröndóttur og hvítur geldur fress sem óskar nú eftir traustu framtíðarheimili þar sem hann unir sér sem innikisa. Hann er feiminn til að byrja með, er rólegur og yfirvegaður og finnst gott að geta horft út um gluggann og fylgjast með lífinu. Hann er ekki vanur börnum né öðrum dýrum, en er kelinn og ljúfur við þá sem hann treystir. Hann er smá chonky boi sem þarf smá aðhald þegar á líður en hann er heilbrigður, flottur og hamingjusamur kisi.

Áhugasamir hafið samband við Kattholt svo hægt sé að finna tíma til að heimsækja hann á fósturheimilið þar sem hann dvelur nú.

Hægt er að hringja alla virka daga milli 9-12 í síma 567-2909 eða senda tölvupóst á kattholt@kattholt.is

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.