Theodor 2 ára – Útiköttur

1 okt, 2025

Theodor er 2 ára gamall útiköttur sem óskar eftir góðu framtíðarheimili. Hann hefur ekki verið mikið í kring um börn né önnur dýr. Thea elskar blautmat og kattanammi.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Theodor. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.