Sultan okkar besta óskar eftir rólegu og góðu heimili. Hún er soldið feimin þessi elska og þarf góðan tíma inni til að venjast. Vill kannski kíkja aðeins út eftir góðan tíma. Hún er yndisleg kisa sem elskar nammi og klapp þegar hún er byrjuð að treysta.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Sultu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
