Skýrður Georg Bjarnfreðarson

29 júl, 2009

Í byrjun júlímánaðar fannst persneskur högni við Hlaðhamra í Reykjavík.  


 


Kom í Kattholt 3. Júlí sl.  Ég kyngreindi hann vitlaust og skráði hann inn sem læðu.


 


Við komu í Kattholt var hann mjög horaður, skýtugur og feldurinn allur í hnútum.


 


Hann var mjög lystarlaus litla skinnið. Ég tók þá ákvörðun að leggja hann inn á Dýraspítalann í Víðidal. 


 


Þar var hann meðhöndlaður með lyfjagjöf og þegar hann var orðinn hress var hann geltur, rakaður og örmerktur.


 


Hann er ekki talinn gamall, ca 2 ára.Enginn hefur gefið sig fram sem eigandi.  Hann var skýrður Georg Bjarnfreðarson, svipurinn leynir sér ekki.


 


Kær kveðja.


Sigríður Heiðberg formaður.