Skylar 2 ára – Útikisa

23 júl, 2025

Skylar er 2 ára forvitinn en svolítið feiminn í fyrstu. Hann óskar eftir góðu, rólegu framtíðarheimili. Honum finnst gott að fá klapp og dekur og óskar eftir hinni fullkomnu fjölskyldu eða félaga fyrir sig.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Skylar. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.