Sandra 10 ára – Útiköttur

1 okt, 2025

Sandra kemur með syni sínum, Felix og hún óskar eftir að komast á gott framtíðarheimili, mögulega með honum. Hún elskar fisk þá sérstaklega soðna ýsu. Er vön að láta smella fingrum áður en matur er þá kemur hún hlaupandi. Yndisleg kisa.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Söndru. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.