Púma 8 ára innikisa

29 júl, 2024

Púma er svört læða sem óskar eftir traustu framtíðarheimili þar sem hún mun una sér sem innikisa. Hún er ljúf og blíð en feimin og þarfnast rólegs heimilis þar sem hún fær að vera eina prinsessan og þar sem blíður kisuvinur býr sem getur kennt henni á mannfólkið. Púma er viðkvæm fyrir látum og á það til að fela sig þegar hún verður vör við nýtt fólk. Hún mjálmar lítið sem ekkert og lætur mjög lítið fyrir sér fara. Fullkominn köttur fyrir rólegt heimili.

Púma er til ættleiðingar frá núverandi fósturheimili sínu og hægt er að hafa samband til að koma og skoða hana á tölvupósti inga.th.jonsdottir@gmail.com.