Kæru félagsmenn og aðrir velunnarar Kattholts.
Basarnefnd
Kattavinafélagsins stefnir á að halda páskabasar í Kattholti laugardaginn 28.
mars nk. Enn og aftur leitum við eftir aðstoð ykkar kæru kattavinir.
Við óskum eftir
sjálfboðaliðum í bakstur, en bakkelsið er ómissandi á basarinn. Gott væri að fá
að vita með góðum fyrirvara hverjir væru til í að baka. Við tökum glöð á móti
páskaskrauti, ýmis konar smáhlutum (til dæmis skarti og kisustyttum) og fatnaði. Basardót er hægt
að koma í Kattholt alla virka daga. Öll innkoma fer óskert í starfsemi Kattholts.
Vinsamlegast sendið tölvupóst til eygudjons@simnet.is og kattholt@kattholt.is ef þið hafið áhuga á
að baka fyrir okkur.
Nánar þegar nær dregur.
Með kærum kveðjum og fyrirfram þökkum, basarnefnd.