Neyðarkall – Matarlaust í Kattholti

14 jún, 2011

Kæru kisuvinir.  Oft var þörf en nú er nauðsyn. Síðustu vikur höfum við verið með svo mikið af óskilaköttum að allur matur er uppurinn.


Við sjáum fram á að fóðrið sem nú er til dugi mjög skammt og biðjum ykkur því af einlægni að hjálpa okkur, annað hvort með því að kaupa mat og koma honum í Kattholt eða leggja inn á reikninginn okkar 0113-26-000767 kt. 550378-0199.


Það er fátt sorglegra en að sjá óskilakisur sem í ofanálag eru banhungraðar og við í stjórninni ráðum ekki við það ein að kaupa allan mat sem þarf, þótt vissulega ætli hvert og eitt okkar að styrkja Kattholt til matarkaupa strax í dag.
 
Við leitum því á ykkar náðir kæru kattarvinir og biðjum ykkur að hjálpa okkur að sjá til þess að óskilakisurnar í Kattholti líði ekki skort. Þær fá nóg af vatni, ást og blíðu en því miður dugar það víst skammt til að þeir haldi lífi.