Natalie Rós – 6 ára útikisa

10 okt, 2024

Natalie Rós er 6 ára hvít og þrílit læða sem óskar nú eftir traustu og góðu framtíðarheimili þar sem hún kæmist út að leika sér. Hún er ekki vön öðrum dýrum en er góð með stálpuðum börnum. Hún er kelin og ljúf og kýs rólegheit umfram allt.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Natalie Rós. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.