Minningarsjóður Sigríðar Heiðberg

Eftir fráfall Sigríðar var stofnaður minningarsjóður um hana, sem hefur það hlutverk að styðja við starfsemina í Kattholti.

Til að gefa í sjóðinn er einfaldast að senda beiðni á [email protected].

Þar þarf að koma fram nafn og heimilisfang viðtakanda og nafn þess er minningargjöfin er gefin um og nafn/nöfn gefenda.

Upphæð sem gefin er, er lögð inn eða millifærð á reikning:  0113 15 381290 kt. 550378 0199.

Það auðveldar afgreiðslu ef beðið er um að kvittun sé send á netfang.  Minningarkortin verða send út eins fljótt og unnt er.

Með góðum kisukveðjum og þökkum fyrir stuðninginn.