Í borgarstjórnartíð Davíðs Oddsonar mætti Kattavinafélag Íslands miklum skilningi á starfsemi félagsins og fékk góðar undirtektir þegar félagið leitaði til hans. Í kjölfarið veitti borgarstjórn Davíðs þann fjárstyrk sem félagið vantaði upp á til að ljúka við fyrsta áfanga í byggingu eigin húsnæðis fyrir starfsemi félagsins. Þessi styrkur varð vendipunktur í sögu Kattavinafélagsins og gerði félaginu kleift að hefja starfsemi í eigin húsnæði að Stangarhyl 2 í Reykjavík og fékk húsið nafnið Kattholt. Villtir og týndir heimiliskettir gátu nú loks notið húsaskjóls, matar og viðeigandi aðhlynningar eftir mismiklar hrakningar og vergang. Með starfsemi Kattholts og upplýsingamiðlun félagsins má ætla að þjóðarsálin hafi öðlast betri vitund og virðingu fyrir dýrum og þeirri nauðsyn að sinna þeim jafnt sem mannfólkinu. Á þeim tæplega 35 árum sem liðin eru frá því að Kattholt tók til starfa hafa óteljandi kisur fengið þar aðhlynningu, týndir kettir komist aftur heim til eigenda sinna og heimilislausum köttum útveguð heimili. Í Kattholti er einnig rekið hótel þar sem kisur njóta umsjár á meðan eigendur þeirra eru fjarverandi.
Nú þegar sannur dýravinur hefur kvatt sviðið minnist Kattavinafélag Íslands Davíðs Oddsonar með hlýhug og þökkum og sendir aðstandendum hans innilegar samúðarkveðjur.
