Okkar elskaði Markó hefur verið týndur síðan laugardaginn 19. september. Markó er um 5 ára gamall fress.
Hann er inni/úti köttur, mjög góður veiðiköttur, ljúfur og góður og elskar fólk og börn. Hann er alls ekki fælinn og er vanur að vera úti.
Það sem gerir okkur sérstaklega áhyggjufull er að Markó hefur aldrei farið frá okkur áður. Ef hann fer út hefur hann alltaf komið heim aftur, yfirleitt innan hálfs dags. Nú eru liðnir nokkrir dagar og við höfum leitað víða án árangurs.
Við búum í Höfnum á Suðurnesjum.
Ég hef beðið nágranna um að athuga með skúra og kofa en engin hefur séð til hans.
Hann er örmerktur og með ól með litillri bjöllu.
Símanúmerið mitt er 821 1335
