Kisi 6 ára – Útiköttur

8 jún, 2026

Kisi er einstaklega ljúfur, örlítið feiminn loðbolti sem elskar kúr, catnip og nammi. Hann er útiköttur og óskar eftir góðu framtíðarheimili.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Kisa. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.