Nú eru kettlingarnir sem voru skildir eftir fyrir utan Kattholt tilbúnir í heimilisleit og leita því að fullkomnum framtíðarheimilum!
Við verðum með opið hús miðvikudaginn 18. september og fimmtudaginn 19. september frá klukkan 13-15 báða dagana.
Allir hjartanlega velkomnir!
Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.