Keilir og Goði 1 árs bræður sem vilja vera útikisur

17 sep, 2024

Keilir og Goði eru rúmlega eins árs fressar sem óska eftir traustu framtíðarheimili þar sem þeir fá tækifæri að komast út að leika sér. Þeir hafa verið innikisur fram að þessu, en sýna merki um að vilja vera úti. Þeir eru ástríkir og ljúfir og eru mjög nánir og fara því saman á heimili á verði eins kattar.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða þessa sætu bræður. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.

Ljósmyndari: Nadia Jade Cross