Karólína 10 ára innikisa

15 júl, 2024

Karólína Queen er 10 ára svartyrjótt og gullfalleg læða sem óskar eftir traustu framtíðarheimili. Hún er næstum búin að vera í heilt ár í Kattholti, en hún er með svolítið sérstakar kröfur um heimili og það getur ekki hver sem er tekið svona drottningar-dívu kött. Hún er komin af villiköttum og er viðkvæm fyrir látum og börnum og öllum öðrum dýrum. Hún vill ekki láta snerta sig, en leyfir þér að klappa sér á hausnum ef hún fær nammi. Hún er mjög eigendaholl og þar sem fyrri eigandi lést þá leitar hún að reynslumiklum einstaklingi sem getur leyft henni að búa hjá sér.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Karólínu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Símafyrirtækið Hringdu stendur undir kostnaði við ættleiðingargjald Karólínu, en hún er köttur ársins í samvinnuverkefni Kattholts og Hringdu.

Ljósmyndari: Nadia Jade Cross