Kæra Kattholt

14 nóv, 2005

Ég vildi bara láta vita að kisustelpa sem við kærastinn minn fengum í sumar er yndisleg og takk takk takk fyrir hana.


Hún var víst yfirgefin greyjið áður en hún kom í Kattholt. Hún er alveg orðin uppáhaldið í fjölskyldunni allir vilja leika við hana og knúsa hana. Ef hún hefur ekki verið knúsuð lengi þá klifrar hún upp buxnaskálmina á manni og vill helst vera þar.  Hún er sælkeri og elskar ávexti og grænmeti, sérstaklega brokkolí. 


Takk fyrir að leyfa okkur að fá hana.


Kær kveðja 
Sara og Lísa