Kæru vinir. Ég sendi ykkur nokkrar línur frá Kattholt.
Eins og þið hafa tekið eftir var komið með 8 kettlinga úr Elliðaárdalnum í gær. bornir út af eigendum sínum.
Þeir eru allir heimiliskettir, blíðir og góðir og frískir.
Ég átti bágt með að sofna í gærkveldi út af þessum skelfilega atburði . Grimdin hjá þessu fólki. Að horfa á litlar kisur í vanmætti sínum fer alveg með mig.
Ef einhver sem les þessar línur og þekkir eiganda kettlinganna , bið ég hann að tala við okkur. Við getum ekki lengur horft upp á að fólk setji kisur í plastpoka, pappakassa, eða hendi þeim út og þeir eigi að bjarga sér.
Hvað hefur breyst með tilkomu Kattholts? Stundum er ég voðalega ánægð og mér finnst sólin skína á alla starfsemina hér.
Svo hrekkur maður við , þegar litlum kisubörnum er hent út eins og hverju öðru rusli. Guð minn góður.
Á 17 árum sem Kattholt hefur starfað hef ég upplifað mart skemmtilegt, kisur komast heim , kisur fá ný og ábyrg heimili. En svo hugsa ég líka um dökku hliðarnar . Þær valda alltaf hryggð í hjarta mínu.
Dýrin mín hafa gefið mér mikla gleði og ég hef trú á því að þau geri okkur að betra fólki.
Hugleiðingar formanns.
Sigríður Heiðberg.