Góa óskar eftir góðu og rólegu framtíðarheimili. Þarf góðan tíma til að venjast og þolinmæði. Er algjört gull þegar hún er farin að treysta.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Góu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
