Kæru kattaeigendur! Það er fullbókað á Hótel Kattholti til 25. júlí næstkomandi. Núna er tíminn til að panta gistingu fyrir kisu um verslunarmannahelgi. Í fyrra komust færri að en vildu. Kisur sem koma á hótelið þurfa að uppfylla ákveðin skilyrði. Upplýsingar um hótelið má finna á kattholt.is. Áhugasamir geta hringt í síma 567-2909 eða sent póst á kattholt@kattholt.is fyrir frekari upplýsingar.
Kveðjur frá starfsfólki og kisum í Kattholti