Flöffí 9 ára útikisa

22 ágú, 2024

Flöffí er 9 ára bröndótt læða sem óskar nú eftir traustu framtíðarheimili þar sem hún kemst út að leika sér. Hún er ekki vön börnum, en mögulega er hægt að kynna hana fyrir öðrum kisum. Hún er ljúf og góð og skemmtileg kisa.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Flöffí. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.