Emil er hress og skemmtilegur köttur í leit að heimili. Hann elskar að spjalla, leika og kíkja út. Honum finnst gott að fá klapp og er algjör dekurrófa.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja Emil. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
