Elsa 3 ára – Útiköttur

3 des, 2025

Elsa er lítil og nett læða sem vill fá að komast út og inn að vild. Hún er algjör dífa og mun örugglega hvæsa aðeins á þig til að byrja með en eftir smá tíma mun hún vonandi eiga hug þinn og hjarta 🧡 Elsa óskar eftir rólegu heimili þar sem hún er svolítið feimin og stressuð týpa. Aldur: 3 ára.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Elsu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.