Ellie er falleg svört 5 ára fyrrum villikisa. Hún er forvitin, elskar nammi og sýnir því mikinn áhuga. Hún hefur ekki mikinn áhuga á snertingu.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Ellie. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.
