Ég fer fram á að Dýraverndarsamtök láti í sér heyra. Sigríður Heiðberg.

22 jún, 2008







 
 
Í hádeginu í dag barst lögreglunni á Suðurnesjum tilkynning um hund sem hefði fundist í hrauninu skammt frá Kúagerði, þar sem ekið er í áttina að Keili. Hafði fólk verið þar á ferð með hunda sína, töluvert langt frá veginum, er það gekk fram á lítinn hvolp sem hafði verið grafinn lifandi og skilinn eftir.

Samkvæmt lýsingu lögreglunnar hafði nokkrum stórum og þungum grjóthnullungum verið raðað ofan á hvolpinn svo að aðeins sást rétt í höfuð hans. Hvolpurinn, sem lögreglan telur að sé Dobermann blanda og um það bil fjögurra mánaða gamall, var mjög máttfarinn og mikið bólginn og gat ekki staðið sjálfur uppi. Lögreglumenn fóru með hann á dýraspítala og telur dýralæknir þar að hvolpurinn muni ná sér.

Þar sem hvolpurinn var ómerktur og er án örmerkis, er ekki vitað um eiganda. Lögreglan biður því þá sem hafa einhverja vitneskju um málið að hafa samband við sig í síma 420-1800. Um mjög gróft brot á dýraverndarlögum er um að ræða, segir í tilkynningu frá lögreglunni.rófu hund lifandi við Kúagerði


, 21. jún. 2008 16:56


Grófu hund lifandi við Kúagerði


 


Á 17 árum hér í Kattholti hef ég tekið á móti kisum, oft  nær dauða en lífi. 


 


Kisurnar hafa verið teknir af heimilum sínum, úr gámum og í pappakössum fyrir utan Kattholt.


 


Stórlega er brotið á dýrunum okkar.


 


Eigendur þeirra eru með pálmann í höndunum og komast upp með níðingsverk sín , án þess að þurfa að bera neina ábyrgð.


 


Við dýravinir verðum að standa vörð um dýrin okkar og láta í okkur heyra. 


 


Ég er með margar hugmyndir.


 


Dýramenning okkar er á lágu plani, það fullyrði ég.


 


Kær kveðja.


Sigríður Heiðberg formaður.