Dimma 6 ára útikisa

10 sep, 2024

Dimma fallega er 6 ára svört og hvít læða sem óskar nú eftir traustu framtíðarheimili þar sem hún kæmist út að leika sér. Hún er ekki vön börnum en gæti vanist öðrum kisum. Hún er ljúf og góð.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða kisu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.

Ljósmyndari: Nadia Jade Cross