Bella – Útikisa

17 jan, 2026

Bella er yndisleg. Hún er hlýr og góður loðbolti sem gefur mikið af sér. Hún er að leita að fullkomna framtíðarheimilinu. Bella er útikisa, ekki hrifin af ungum börnum né öðrum kisun.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Bellu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.