Alfa 7 ára útikisa

22 ágú, 2024

Alfa bjútí er 7 ára bröndótt og hvít, síðhærð læða, sem óskar nú eftir traustu framtíðarheimili þar sem hún fengi að komast út af og til. Hún er alls ekki vön börnum né öðrum dýrum, en er ofboðslega góð við þá sem hún treystir.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Ölfu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.