Aðalfundur Kattavinafélags Íslands þriðjudaginn 5. maí 2026

22 apr, 2026

Boðað er til aðalfundar Kattavinafélags Íslands (KÍS) þriðjudaginn 5. maí 2026 kl. 20:00 í Kattholti, Stangarhyl 2, 110 Reykjavík.

Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf. Öll velkomin en kjörgengi og rétt til að greiða atkvæði á aðalfundi félagsins hefur fullgilt félagsfólk, skuldlaust um áramót næst á undan aðalfundi. Ný framboð til stjórnarsetu skulu berast stjórn KÍS a.m.k. viku fyrir boðaðan aðalfund.