Jólabasar í Kattholti 28. nóvember

12 nóv, 2026

🎄❤️JÓLABASAR Í KATTHOLTI ❤️🎄

Nú erum við í framkvæmdar og undirbúnings gír. Þess vegna verður hlé verður á sýningum katta í heimilisleit fram að 28. nóvember en þá ætlum við að vera með jólabasar þar sem hægt verður að versla fallega hluti, happdrættismiða, kökur og skoða kisur í heimilileit.

🌟28. nóvember 2026
🌟Klukkan 11:30-17:00
🌟Stangarhylur 2, 110 Reykjavík.
Á basarnum verður meðal annars hægt að finna:
🌟Kattholtsdagatalið 2027.
🌟Katthots bolir og bollar.
🌟Handunnið jólaskraut og gjafavöru.
🌟Fallegt smádót
🌟Heimagerðar kökur og annan bakstur.
🌟“Bland í poka“ hægt að velja úr ýmsu kattadóti og kattanammi.
🌟Hægt að skoða og sækja um kisur í heimilisleit.
🌟Haldið verður happadrætti með stórglæsilegum vinningum.
🌟Og margt fleira!
Tekið er við vörum til að selja á basarnum á opnunartíma Kattholts.
Allur ágóði rennur til Kattholts 💛
Frítt inn – Verið velkomin!