Það styttist í jólabasar Kattavinafélags Íslands sem haldinn verður í Kattholti laugardaginn 2. desember kl. 11-16.

Síðustu ár hefur kökusalan á basarnum gengið vel og margir keypt sér smákökur og annað bakkelsi. Við leitum til kattavina sem eru tilbúnir að baka fyrir okkur og koma með í Kattholt á laugardeginum milli kl. 10-11. Hvetjum alla sem hafa tök á að aðstoða okkur með þetta svo við getum haft basarinn sem glæsilegastan. Allur ágóði rennur til óskilakisanna í Kattholti.

Okkur þætti vænt um að bakarar sendu okkur póst á [email protected].

Með fyrirfram þökk,

basarnefnd