Ágóði af sölu þessarar sígildu kennslubókar fer til styrktar dýrum í vanda. Kattavinafélagið þakkar kærlega fyrir hönd kattanna í Kattholti og hvetur fólk til að kaupa bókina.

Útgefandi hinnar sígildu bókar FLAUTAN OG LITIRNIR, hefur ákveðið að allur ágóði af sölu bókarinnar renni til aðstoðar dýrum í vanda. Með því að kaupa bókina fyrir börnin þá rennur afraksturinn til Dýrahjálpar Íslands, Kattavinafélags Íslands, Kattholts og Villikatta.

Bókin kostar aðeins kr 2.000. Panta má bókina í tölvupósti til útgefanda: [email protected].

http://krakkaruv.is/…/flautan-og-liti…/flautan-og-litirnir-1