Hinn árlegi jólabasar Kattavinafélags Íslands verður haldinn laugardaginn 26. nóvember n.k. kl. 11-16 í Kattholti, Stangarhyl 2, Reykjavík.

Á boðstólum verða fallegir munir er tengjast jólunum s.s. jólakort, merkispjöld, jólapappír, jólaskraut, handverk, handunnin kerti og kramarhús ásamt hefðbundnu basardóti.

Á basarnum verður til sölu dagatal ársins 2017 og handgert kisuskraut, hannað til styrktar starfinu. Einnig kisutengdur varningur s.s. kattastyttur, skartgripir og úr, peningabuddur og veski, klútar og fleira.

Eins og endranær þá verðum við með girnilegar smákökur og annað bakkelsi.

Yndislegar kisur verða sýndar sem allar eiga það sameiginlegt að þrá að eignast ný og góð
heimili.

Allur ágóði fer til styrktar óskilakisunum í Kattholti.

Verið hjartanlega velkomin,
Basarnefnd.