Moli 2 ára – Inniköttur

9 apr, 2025

Hann Moli okkar óskar eftir mjög rólegu og barnlausu framtíðarheimili. Hann er yndislegur feiminn, bröndóttur millisíðhærður fressköttur sem elskar ró og næði, fá smá klapp þegar hann treystir sér til og elskar að fá eitthvað gott að borða.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Mola. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.