Leó og Brandó eru tveir rauðir og hvítir ótrúlega sætir bræður sem óska eftir því að fá að komast saman á heimili.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Leó og Brandó. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
