Yndislega Jasmín leitar að framtíðarheimilinu sínu. Hún er mikil kúrukerling, svolítil bolla en hún elskar að borða góðann mat og kúra upp í sófa. Hún er félagslind og bara frábær kisa. Hún er 5 ára gömul og myndi vilja komast út öðru hvoru.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Jasmín. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
