Herra Barri er 2 ára feiminn í fyrstu en ótrúlega sætur og góður svartur kisi sem óskar eftir rólegu og góðu heimili. Hann er kelinn og góður kisi sem verður besti vinur manns þegar hann er byrjaður að treysta. Hann er góður með öðrum köttum og gæti verið innikisa.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Herra Barra. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.
