Hera 2 ára – Útikisa

31 okt, 2025

Yndislega Hera er falleg og blíð þrílit tveggja ára læða sem óskar eftir góðu heimili. Hún elskar félagsskap mannfólks og að leika sér.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Heru. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar frá mánudags til miðvikudags milli kl. 13:00-14:30. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909. Í skoðunartímanum er hægt að fylla út umsókn um kött. Hringt er í samþykkta umsækjendur á fimmtudögum.