Gríma – 7 ára útikisa

26 sep, 2024

Gríma fallega er 7 ára þrílit læða úr Grindavík. Hún var á flakki eftir rýminguna og þegar hún fannst þá þurfti hún að vera innikisa, en hún var ekki sátt við það og vill fá frelsið að leika sér frjáls úti. Hún er ekki vön öðrum dýrum eða börnum.

Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Grímu. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.

Gjald fyrir kisu frá Kattholti er 24.500 og innifalið í gjaldinu er ófrjósemisaðgerð/gelding, örmerking og skráning hjá Dýraauðkenni, heilsufarsskoðun, ormahreinsun og fyrsta bólusetning.