Garlic er fallegegur og yndæll köttur sem leitar að sínu framtíðarheimili. Hann er klár, kann að opna hurðir, spjallari og kann sögurnar margar, elskar að kúra í fanginu á manni. Frábær karakter. Vill vera eini kötturinn á heimilinu.
Áhugasamir bókið skoðunartíma til þess að heimsækja og skoða Garlic. Skoðunartímar eru ca 20 mínútna tímar alla virka daga frá kl. 13:00-14:20. Hægt er að bóka skoðunartíma með tölvupósti kattholt@kattholt.is eða símleiðis á símatímum alla virka daga milli kl. 9-12 í síma 567-2909.